Forsíða

Skýrslan

Facebook

Senda á Facebook
Fýsileikaskoðun á sameiningu sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum PDF Print E-mail

Tilkynning frá Hundradaganefnd um kynningu á niðurstöðum könnunar á sameiningu Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps

Helstu niðurstöður úr skýrslu Hundraðdaganefndar sem skipuð var um könnun á sameiningu Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps verða kynntar á fundi í Ráðhúsinu í Bolungarvík, þriðjudaginn 18. maí kl. 12:00.

Fundurinn er öllum opinn.

Hundraðdaganefnd, skipuð fulltrúum meirihluta og minnihluta sveitarstjórna sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum, Bolungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, fól Melland Partners að leiða vinnu við skoðun á kostum þess og göllum að sameina sveitarfélögin í eitt.

Vinna við verkefnið hófst í nóvember 2009.  Starfshópur sveitarfélaganna hóf sín störf 12. október 2009 (Hundraðdaganefndin) og var við það miðað að starfið tæki um hundrað daga.  Í desember tók Hundraðdaganefndin ákvörðun um að miðað skyldi við bráðabirgðaniðurstöður ársreikninga sveitarfélaganna í fjárhagslegu mati á stöðu sveitarfélaganna og fjárhagsáætlanir fyrir árið 2010.  Fljótlega kom í ljós að of mikil óvissa var um túlkun bráðabirgðaniðurstaðna fyrir árið 2009 og var þá ákveðið að bíða þar til drög að ársreikningum sveitarfélaganna lægju fyrir.  Slík drög lágu fyrir um niðurstöður ársreikninga allra sveitarfélaganna þann 10. maí 2010 og byggir skýrslan á þeim.

Hundraðdaganefnd.

 



Tilkynning frá Hundraðdaganefnd

Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur hafa unnið að skoðun á sameiningu sveitarfélaganna, kostum og göllum.  Sú vinna sem verið hefur í gangi felur m.a. í sér ítarlega greiningu á þróun fjármála sveitarfélaganna allt frá árinu 2002.  Í slíkri greiningu er mikilvægt að íbúar svæðisins fái sem gleggstar upplýsingar um stöðu sveitarfélaganna eins og hún er í dag.  Ársreikningar sveitarfélaganna eru nú langt komnir fyrir árið 2009.  Í þessu ljósi telur hundraðdaganefndin að mikilvægt sé að við greiningu Melland Partners á fjárhag sveitarfélaganna verði bætt upplýsingum úr ársreikningum sveitarfélaganna fyrir 2009, þegar þær liggja fyrir.

Gert er ráð fyrir því að skýrslan verði lögð fram fyrir lok næsta mánaðar.

Hundraðdaganefnd.

 


 

Sveitarfélögin á norðanverðum Vestfjörðum, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur, hafa samþykkt að framkvæma skoðun á því hvort fýsilegt sé fyrir þessi sveitarfélög að þau sameinist.

Slík fýsileikaskoðun felur í sér könnun á því hvort sveitarfélögin verði betur búin til þess að veita þá þjónustu sem íbúar þeirra sækjast eftir, sameinuð eða ekki.

Til að hafa umsjón með fýsileikaskoðun þessari hafa sveitarfélögin skipað í nefnd, einn fulltrúa úr meirihluta og öðrum úr minnihluta frá hverju sveitarfélagi. Þessi nefnd er kölluð Hundraðdaganefnd. Gert er ráð fyrir að nefndin skili niðurstöðum áður en 100 dagar eru liðnir. Hundraðdaganefndin hefur samið við Melland Partners um ráðgjöf vegna verkefnisins.

Vinna nefndarinnar hófst með skipan starfshópa, sem vinna að því að greina þá kosti og þá galla sem fylgja því að sameina sveitarfélögin í hverjum málaflokk fyrir sig. Upplýsingar um vinnu vinnuhópanna má finna hér til hægri á síðunni, en upplýsingar um stöðu hvers sveitarfélags eftir málaflokkum er að finna til vinstri á þessari síðu.

Það er von Hundraðdaganefndarinnar að síða þessi megi verða til þess að íbúar sveitarfélaganna þriggja geti fylgst með störfum fulltrúa sinna og eigi betri möguleika á að taka þátt í að móta það sveitarfélag sem þeir vilja búa í, hvort heldur það felur í sér að sveitarfélögin sameinist eða ekki.

 
100dagar.is, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting